Skip to content

Skilmálar

Upplýsingar um seljanda:
Skrautás ehf., kt. 520799-2149, Leiðhömrum 39, 112 Reykjavík rekur vefverslunina krafla.is. Fyrirtækið sérhæfir sig framleiðslu veiðiflugna eftir Kristján Gíslason og Gylfa Kristjánsson undir vörumerkinu Krafla í smásölu og vefsölu. Virðisaukaskattsnúmer Skrautás ehf. er 63003. Sími: 698-2844 og 6991322. Netfang: sala@krafla.is

Verð og greiðslumöguleikar
Verð í vefverslun eru öll gefin upp með virðisaukaskatti og eru því heildarverð. Skrautás Ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, breyta verðum á vörutegundum fyrirvaralaust t.d. vegna rangra verðupplýsinga, prentvillna eða gengismála. 

Boðið er uppá að greiða með debetkorti, kreditkorti eða bankainnleggi í vefverslun krafla.is

Afhending vöru
Allar vörur eru afgreiddar 1 til 3 dögum eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Skrautás Ehf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Skrautás Ehf. til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Athugið að ekki er hægt a skila sérmerktri vöru. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Hægt er að endursenda vöru til Skrautás ehf. Leiðhömrum 39,112 Reykjvík. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema hann hafi fengið ranga eða skemmda vöru afhenda. Að öðru leyti vísast um neytendakaup nr. 48/2003. Vinsamlegast hafið samband við Skrautás Ehf. í síma 698-2844 eða sala@krafla.is með frekari spurningar.

Öryggi og persónuvernd á vefnum:
Þegar þú notar vef www.krafla.is verða til upplýsingar um heimsókn þína. Skrautás ehf. miðlar þeim ekki til annara.

Skrautás ehf. virðir friðhelgi persónuupplýsinga viðskiptavina sinna. Með því að heimsækja vefinn lýsir þú þig samþykka/n skilmálum okkar um persónuvernd og öryggi.

Hvað eru vafrakökur (e. Cookies)
Cookie er lítil textaskrá sem vefsvæðið getur sett inn á tölvuna þína eða önnur snjalltæki þegar vefsvæði www.krafla.is er heimsótt í fyrsta sinn. Textaskráin er geymd á vefvafra notenda og vefur Skrautáss ehf. þekkir skrána. Upplýsingarnar í textaskránni má nota til að fylgjast með vafri notenda á vefsvæðinu, bæta þjónustuna o.fl. Þetta gerir það mögulegt að Skrautás ehf. getur sent ákveðnar upplýsingar í vafra notenda og getur gert upplifun notanda ánægjulegri. Cookies geta innihaldið texta, númer eða upplýsingar eins og dagsetningar, en þar eru engar persónuupplýsingar um notendur geymdar. 

 

Notkun Skrautáss ehf. á vafrarakökum
Með því að samþykkja skilmála Skrautáss ehf. (www.krafla.is) um notkun á cookies er fyrirtækinu m.a. veitt heimild til þess að:

  • bera kennsl á notendur sem hafa komið áður á vefinn og sníða leit og þjónustu við gestina til samræmis við auðkenninguna,
  • að gera notendum auðveldara að vafra um vefsvæðið, til dæmis með því að muna eftir fyrri aðgerðum,
  • að þróa og bæta þjónustu vefsvæðisins með því að fá innsýn í notkun hennar,
  • að birta notendum auglýsingar
  • að safna og senda tilkynningar um fjölda notenda og umferð um svæðið,

Skrautás ehf. notar Google Analytics til vefmælinga. Við hverja komu inn á vefinn eru nokkur atriði skráð, svo sem tími og dagsetning, leitarorð, frá hvaða vef er komið og gerð vafra og stýrikerfis. Þessar upplýsingar má nota við endurbætur á vefnum og þróun hans, t.d. um það efni sem notendur sækjast mest eftir og fleira. Engum frekari upplýsingum er safnað um hverja komu og ekki er gerð tilraun til að tengja slíkar upplýsingar við aðrar persónugreinanlegar upplýsingar.

Þjónusta Siteimprove er nýtt á vefnum með svipuðum hætti og Google Analytics, til dæmis til telja heimsóknir og til að finna brotna tengla sem notendur smella á sem og bæta upplifun notenda inn á vefnum.  

Persónulegar upplýsingar sem við söfnum
Mögulegt er að við söfnum persónugreinanlegum upplýsingum um þig, svo sem nafni, heimilisfangi, netfangi og símanúmeri í tengslum við afgreiðslu á pöntun frá þér eða vegna annarra samskipta við þig. Til dæmis skráum við þær persónugreinanlegu upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að koma til skila þeirri vöru sem þú kaupir. Einnig fjármálatengdar upplýsingar og heimilisfang vegna reiknings, og einstaklingsupplýsingar, svo sem netföng, heimilisfang, símanúmer og viðtökustað vörusendingar. Fjármálatengdar upplýsingarnar eru nýttar eingöngu til að innheimta greiðslu fyrir þá vöru sem þú kaupir. Allar persónuupplýsingar sem kunna að að verða til við notkun á kökum verða meðhöndlaðar og unnið með þær í samræmi við skilmála GDPR frá 2018

Ef þú skráir þig á póstlista eða gefur upp netfangið þitt sendum við þér fréttabréf. Ef þú færð nú þegar tölvupósta frá fyrirtækinu en vilt hætta að fá þá er hægt að senda okkur póst á sala@krafla.is

Neðst á öllum markpósti sem www.krafla.is sendir er einnig hnappur „afskrá af póstlista“ sem býður upp á að láta fjarlægja það netfang sem pósturinn var sendur á af póstlistanum.

Að versla á vefnum okkar
Við leggjum okkur fram um að vernda persónulegar upplýsingar með því að nota þá öryggisstaðla sem viðeigandi eru eftir eðli upplýsinganna, hvort sem þær upplýsingar eru fengnar og/eða geymdar fyrir milligöngu netsins eða ekki. Við gerum allt sem skynsamlegt og viðeigandi getur talist til að koma í veg fyrir að slíkar upplýsingar glatist, verði stolið, óviðkomandi fái aðgang að þeim, þær verði opinberaðar, afritaðar, notaðar, þeim breytt eða eytt. Við leggjum sérstaka áherslu á að tryggja öryggi upplýsinga þegar keyptar eru vörur í gegnum vefsíðuna. Vefurinn notast við SSL-skilríki sem þýðir að öll samskipti eru yfir dulritað burðarlag. Það gerir gagnaflutning í gegnum hann öruggari.

SSL skilríki varna því að óprúttnir aðilar komist yfir gögn sem send eru í gegnum vefinn, eins og t.d. lykilorð. Með skilríkjunum eru upplýsingar sem sendar eru milli notenda vefmiðlara dulkóðaðar og gögnin sem flutt eru á milli skila sér á réttan stað á öruggan máta.

Lög og varnarþing 
Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur netverslun Skrautás ehf kt.520799-2149, Leiðhömrum 39, 112 Reykjavík á grundvelli þessara ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.